Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 9. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 


Ferðahandbókin

FERÐAMÁL


15. maí 2008

Vafasamir starfshættir?

Enn berast Neytendasamtökunum fréttir af vafasömum bakreikningum sem ferðaskrifstofur senda neytendum. Um daginn hafði fjölskylda nokkur, sem hugðist skella sér af landi brott í júní, samband við NS. Saga þessarar fjölskyldu var á þá leið að ferðin hafði verið greidd að fullu, með tilheyrandi gengishækkunum og öðrum gjöldum. Tveimur vikum eftir að fullnaðargreiðsla fór fram barst fjölskyldunni hins vegar bakreikningur að upphæð 24 þúsund krónur. Þegar beðið var um skýringar var fátt um svör og þegar maldað var í móinn lét ferðaskrifstofan í það skína að ef aukagjaldið yrði ekki borgað yrðu engir miðar sendir til fjölskyldunnar og hún gæti þá bara setið heima! Ef satt reynist þá lítur út fyrir að viðkomandi ferðaskrifstofu sé ekki mjög umhugað um að gera vel við viðskiptavini sína og vilji helst ekki njóta áframhaldandi viðskipta við þá. Þá er ótrúlegt, eftir mikla umfjöllun um þessi mál og ákvörðun Neytendastofu sem getið er um hér að neðan, að það sé virkilega ekki hægt að gera þetta rétt!

Neytendasamtökunum bárust einnig fregnir af því að maður sem búinn var að kaupa páskaferð og greiða hana upp, fékk bréf nokkrum dögum fyrir brottför um að hann yrði að greiða aukagjald vegna hækkunar á eldsneyti. Þegar maðurinn hringdi í ferðaskrifstofuna og hugðist malda í móinn var honum sagt að þá fengi hann bara ekki að fara neitt. Ef satt reynist þá harma Neytendasamtökin mjög þetta verklag ferðaskrifstofunnar enda telja þau það ekki í samræmi við lög.

Um svokallaðar pakkaferðir gilda lög um alferðir. 7. gr. þeirra laga veitir raunar heimild til verðhækkana að ákveðnum skilyrðum uppfylltum:

7. gr. Verð það, sem sett er fram í samningnum, skal haldast óbreytt nema því aðeins að þar sé skýrt tekið fram að verð geti hækkað eða lækkað og nákvæmlega sé tilgreint hvernig reiknað skuli út breytt verð. Einungis skal heimila breytingar á:
a. flutningskostnaði, þar með töldum eldsneytiskostnaði,
b. álögum, sköttum eða sérgreiðslum fyrir tiltekna þjónustu, svo sem lendingargjöldum eða gjöldum fyrir að fara um borð eða frá borði í höfnum og á flugvöllum,
c. gengi því sem á við um hina tilteknu alferð.
Síðustu tuttugu daga fyrir brottfarardag má ekki hækka verð það sem í samningi segir.

Þar er þó skýrt tekið fram að ekki má breyta verði til hækkunar síðustu tuttugu dagana fyrir brottför. Í skýringum með þessari lagagrein er svo sérstaklega tekið fram að heimild til verðhækkunar gildi ekki síðustu tuttugu dagana áður en alferð hefst, gengisbreytingar og aðrar breytingar eftir það tímamark geti því ekki breytt verði ferðarinnar, nema hugsanlega til lækkunar. Hvergi er að finna heimild um að breytingar á eldsneytisverði geti breytt verði ferðar nokkrum dögum fyrir brottför.

Þetta er því að mati Neytendasamtakanna alveg skýr regla – ekki má breyta verði ferðar einni eða tveimur vikum, hvað þá fáeinum dögum fyrir brottför og vona samtökin að ferðaskrifstofur fari að þessum reglum í framtíðinni.

Það er þó ekki nægilegt fyrir ferðaskrifstofur að gæta að þessum tímamörkum. Það má alls ekki hækka verð á ferð eftir samningsgerð nema þess sé beinlínis getið í samningi milli aðila að verð geti hækkað vegna einhverra atvika sem fjallað er um í lagagreininni, þ.e. flutningskostnaðar, eldsneytisverðs, skatta, gengisbreytinga og flugvallargjalda. Þannig má t.a.m. ekki hækka verð – þó að getið sé um það í samningi – vegna annarra þátta en þeirra sem beinlínis eru taldir upp í lagagreininni.  Þá er eðlilegt að skilmálar er heimila hækkun af þessu tagi séu kynntir vel fyrir neytendum áður en kaup fara fram, en því miður virðist misbrestur á því.

Þá þarf gengisútreikningur að vera skýr og neytendur sem kaupa sér pakkaferðir eiga rétt á að sjá hvernig hið hækkaða verð er reiknað út. Það er því mjög eðlileg krafa að í samningi komi fram við hvaða gengi er miðað í upphafi. Þá er óeðlilegt að reikna hækkun vegna gengis af þeirri upphæð sem þegar er búið að greiða.

Nánar er fjallað um þetta í ákvörðun Neytendastofu í máli 9/2006 sem væntanlegir ferðalangar eru eindregið hvattir til að kynna sér.

Senda grein

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is