Leiðbeiningar- og kvörtunarþjónustan
Ef þú þarft aðstoð vegna kaupa á vöru eða þjónustu getur þú snúið þér til kvörtunarþjónustu NS.
Hverjir geta notað þjónustuna?
Allir neytendur sem þurfa upplýsingar og aðstoð eða telja að á rétt sinn sé gengið geta fengið leiðbeiningar og aðstoð hjá leiðbeininga- og kvörtunarþjónustu Neytendasamtakanna.
Neytandi þarf þó ávallt fyrst að leita til seljanda eftir úrlausn máls áður en þjónustan tekur viðkomandi mál til meðferðar.
Neytendur, kynnið ykkur rétt ykkar og látið ekki seljendur troða á honum.
Hvað kostar þjónustan?
Þjónustan er innifalin í árgjaldi félagsmanna, en þeir sem ekki eru félagsmenn geta fengið leiðbeiningar mánudaga og fimmtudaga fyrir hádegi á skrifstofu Neytendasamtakanna og ef mál er tekið inn þarf að greiða grunngjald fyrir aðstoð.
Íslenskir neytendur erlendis
Neytendasamtökin sjá um rekstur ENA - Evrópska neytendaaðstoðin
Sjá verðskrá
Sjá aðstoð og upplýsingar annarra aðila en Neytendasamtakanna
Sjá aðildarform
- Ársskýrslan 2002
- Ársskýrslan 2003
- Ársskýrslan 2004
- Ársskýrslan 2005
- Ársskýrslan 2006
- Ársskýrslan 2007
- Ársskýrslan 2008