Mál nr. 2/2010
Miðvikudaginn 10. mars 2010 var fundur haldinn í Kvörtunarnefnd Neytendasamtakanna og Félagi efnalaugaeigenda.
Fyrir var tekið mál nr. 2/2010
F
Gegn
V
Deilt um bætur vegna meints tjóns á pilsi við hreinsun þess hjá V.
Kröfur kvartanda
Kvartandi gerir kröfur um að varnaraðila verði gert að greiða fullar bætur fyrir pils að fjárhæð kr. 18.990 auk kr. 850 fyrir hreinsun.
Gögn:
1. Kvörtun F til Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda dags. 6. janúar 2010
2. Kvittun fyrir pilsi kr. 18.990
3. Tölvubréf Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda til V dags. 13. janúar 2010
4. Tölvubréf V til Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda dags. 25. janúar 2010
5. Tölvubréf Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda til F, dags. 3. febrúar 2010
6. Tölvubréf F til Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda, dags. 15. febrúar 2010
7. Tölvubréf Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda til V, dags. 26. febrúar 2010
8. Tölvubréf V til Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda dags. 26. febrúar 2010
9. Pils sem varð fyrir meintu tjóni
Málavextir:
Kvartandi setti pils í hreinsun hjá V um mánaðarmótin nóvember – desember 2009. Pilsið var keypt í janúar 2009 og kostaði kr. 18.990. Þegar pilsið er skoðað eftir hreinsun tekur kvartandi eftir því að pilsið hefur upplitast við alla sauma. Borin er fram kvörtun við efnalaugina. Er kvartanda tjáð af starfsmanni efnalaugarinnar að upplitunina megi rekja til efnisins. Tjáir kvartandi þá starfsmanninum að sjá megi ummerki mikillar pressunar sem gæti verið orsakavaldurinn. Kvartandi segist hafa borið málið undir tvo fagaðila og að samdóma álit þeirra sé að greinilegt sé að pilsið hafi verið pressað eða straujað við of háan hita beint á efnið. Krefst kvartandi að efnalaugin greiði andvirði pilsins og kr. 18.990, hreinsunarkostnaðar kr. 850 og málsskotsgjalds kr. 1.000. Af hálfu efnalaugarinnar er því haldið fram að farið hafi verið eftir þeim leiðbeiningum sem fylgdu pilsinu. Pilsið var hreinsað í hreinsivél og svo straujað við eðlilegan hita þ.e. straujárn stillt á tvo punkta eins og segir í leiðbeiningunum. Fullyrðingar um að pilsið hafi verið straujað við of háan hita eða verið pressað of mikið standist ekki enda ekki vitað til þess að straujun eða hár hiti valdi því að flíkur láti lit jafnvel ekki flíkur úr gallabuxnaefni eins og pilsið er. Ekki sé óalgengt að með flíkum úr gallabuxnaefni fylgi varnaðarorð um að varasamt sé að setjast í húsgögn með ljósu áklæði fyrr en eftir nokkra þvotta eða hreinsanir þar sem efnið láti lit. Kvartandi telur varla geta staðist að farið hafi verið eftir merkingum á pilsinu enda beri pilsið merki þess. Þá sé það nánast almenn þekking að svona pils séu aldrei straujuð. Fatahreinsunin ítrekar að farið hafi verið eftir merkingum á pilsinu og þar megi sjá að pilsið á að strauja.
Álit Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda:
Að mati nefndarinnar hefur pilsið verið straujað eins og merking á pilsinu gerir ráð fyrir. Hafi pilsið verið straujað á of miklum hita kæmu fram glans á pilsið sem ekki er raunin. Við hreinsun jafnvel við fyrstu hreinsun láta álagsblettir lit á flíkum úr gallabuxnaefni. Pilsið virðist ekki hafa verið sett í hreinsunarvél á röngunni en skv. leiðbeiningum á að þvo pilsið á röngunni. Þá segir í texta á leiðbeiningunum að pilsið eigi að þvo með flíkum með svipaðan lit en af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að pilsið hafi verið sett í hreinsivél með perlklóri. Gæti það hugsanlega hafa valdið því að pilsið hefur látið lit.
Niðurstaða:
Fatahreinsunin V greiði kvartanda F helming verðs pilsins kr. 9.495.
Þorvarður Helgason
Dröfn Farestveit
Sigurjón Heiðarsson