Mál nr. 3/2010
Miðvikudaginn 10. mars 2010 var fundur haldinn í Kvörtunarnefnd Neytendasamtakanna og Félagi efnalaugaeigenda.
Fyrir var tekið mál nr. 3/2010
T
Gegn
A
Deilt um bætur vegna meints tjóns á dúnúlpu við hreinsun hennar hjá Efnalauginni A.
Kröfur kvartanda
Kvartandi gerir kröfur um að varnaraðila verði gert að greiða andvirði úlpunnar kr. 27.990
Gögn:
1. Kvörtun T til Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda, dags. 5. febrúar 2010
2. Kvittun fyrir úlpu kr. 27.990
3. Tölvupóstur Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda til Efnalaugarinnar A, dags. 8. febrúar 2010
4. Tölvupóstur Efnalaugarinnar A til Kvörtunarnefndarinnar, dags. 1. mars 2010.
5. Tölvupóstur Kvörtunarnefndar til T, dags. 1. mars 2010
6. Tölvupóstur T til Kvörtunarnefndarinnar, dags. 1. mars 2010
Málavextir:
Kvartandi setti dúnúlpu í hreinsun hjá Efnalauginni A. Úlpan sem keypt var um jólin 2008, í versluninni K kostaði kr. 27.990. Þegar kvartandi ætlaði að nota úlpuna eftir hreinsunina tók hann eftir að úlpan var flekkótt þar sem dúnninn sást víða í gegnum ytra byrði sem er hvítt að lit. Kvartandi krefst þess að fá úlpuna bætta að fullu.
Að mati Efnalaugarinnar A er millifóður í dúnúlpunni ekki nægilega þétt ofið sem veldur því að dúnninn lekur um alla úlpuna. Gallinn sé því framleiðandanum að kenna.
Álit Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda:
Að mati nefndarinnar er augljóst að innra byrði úlpunnar er lélegt og hefur ekki þolað venjulega hreinsun. Það hefur rifnað og dúnninn því runnið út í ytra byrði úlpunnar. Efnalaugin ber því ekki ábyrgð á skemmd úlpunnar.
Niðurstaða:
Efnalaugin A ber ekki ábyrgð skemmd úlpunnar og ber því ekki að greiða bætur.
Þorvarður Helgason
Dröfn Farestveit
Sigurjón Heiðarsson