Forsíða Hafa samband Aðild að NS
þriðjudagur | 9. febrúar
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

FRÉTTIR OG PISTLAR


20. október 2005

Spurningar um matvælaverð

Neytendasamtökunum hafa borist svör Frjálslynda flokksins, en það fórst fyrir að senda svörin á sínum tíma. Þá eru það einungis stjórnarflokkarnir sem eiga eftir að svara okkur og beinum við þeim tilmælum til Geirs H. Haarde og Halldórs Ásgrímssonar að svara eftirfarandi spurningum um matvælaverð þannig að neytendur geti kynnt sér stefnu flokkanna í þessum málaflokki.

Svör Frjálslynda flokksins:

1)  Finnst þér ásættanlegt að matvælaverð á Íslandi sé allt að 50% dýrara en að meðaltali í öðrum löndum á EES-svæðinu?
Svar: Nei, það er of mikill verðmunur.

2)  Hver  er aðalástæðan fyrir þessu háa matvælaverði að þínu mati?
3)  Hvað telur þú að gera þurfi til að lækka matvælaverð á Íslandi?
Svar við 2) og 3)
Telja má líklegt að innkaupsverð vöru til fámennismarkaðar eins og Ísland er í raun sé meiri en til stærri og fjölmennari markaðslanda.  Auk þess eru flutningsgjöld há til Íslands, sem og tollar og vörugjöld ef þeir leggjast á matvöru.  Virðisaukaskattur  sem leggst ofan á heildarverð  með flutningsgjöldum og álagningu smásölunnar hækkar síðan vöruverð enn frekar.  Fróðlegt væri að breyta vsk-kerfinu þannig að vsk væri aðeins lagður á innkaupsverð vöru.  Þannig fyrirkomulag myndi í raun upplýsa um innkaupsverðið og í leiðinni jafna vöruverð á landinu enn frekar en nú er, þar sem skattheimta af neytendum yrði jöfn um allt land í vsk-kerfinu og af hverjum vöruflokki.  Þannig breytt fyrirkomulag væri einnig upplýsandi um flutningsgjöld og álagningu þar sem innkaupsverð lægi fyrir í opinberum vsk-skýrslum.

4)  Talsverð umræða hefur verið um virðisaukaskatt á matvæli og hvort lækka eigi hann eða jafnvel að fella hann alveg niður. Hver er þín skoðun á þessu?
Svar: Lækka verulega t.d. í 10% og reikna vsk á innkaupsverð matvöru eingöngu sem gefur mikla raunlækkun til neytenda og neytendasamtökum miklar og góðar upplýsingar til virks eftirlits með álögum ríkis og smásölunnar.

5)  Telur þú að tollar og vörugjöld á innlend og innflutt matvæli séu réttlætanleg þegar tekið er tillit til þess háa verðs sem oft er á þessum vörum?
Svar: Varla réttmætt í því háa verði sem hér er á matvöru.  Ríkið hleður kostnaði undir vsk-álagið í endanlegu söluverði

 

Senda grein

Óheimilt er að vitna í heimasíðu NS án þess að geta heimilda

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is