26. nóvember 2007
Neytendasamtökin hafa kært til Neytendastofu vörusvik við sölu á ginsengi. Ástæðan eru kvartanir neytenda um að ginseng sem selt er sem "Rautt kóreskt ginseng" hafi ekki þau áhrif sem ætla mætti að það myndi hafa. Á pökkunum kemur fram "Royal Korean Ginseng, Premium Quality" og varan er í umbúðum merktum fyrirtækinu Fæða fyrir alla ehf.
Einn þeirra sem kvartaði taldi ljóst að við framleiðslu á þessu ginsengi væri notað hvítt ginsengduft en ekki rautt eins og fullyrt er á umbúðum. Einnig hefur verið fullyrt við Neytendasamtökin að gæði á hvítu ginsengi sé lakara en á rauðu.
Vegna þessa ákváðu Neytendasamtökin að fá viðurkennda og faggilta þýska rannsóknarstofu til að rannsaka þetta. Niðurstöður eru afgerandi, með þremur rannsóknaraðferðum var það staðfest í öllum tilvikum að um hvítt ginseng væri að ræða. Í niðurstöðum segir að greinilega komi fram að þau hylki sem rannsökuð voru innihalda hvítt ginsengduft.
Því óska Neytendasamtökin eftir því við Neytendastofu að dreifingaraðila verði bannað að markaðssetja eða merkja þessa vöru sem rautt ginseng, enda ljóst að um fölsun er að ræða þar sem hvítt ginseng er notað í þessa framleiðslu. Þess er jafnframt óskað að Neytendastofa hraði aðgerðum sínum enda óþolandi að verið sé að selja neytendum svikna vöru.
Hér má sjá bréf Neytendasamtakanna til Neytendasofu.
Hér má sjá skýrslu þýsku rannsóknarstofunnar í heild sinni.