Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 29. júlí
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

FRÉTTIR OG PISTLAR


06. ágúst 2008

Burt með skaðleg efni

Neytendasamtökin hafa fjallað um umdeild litarefni (svokölluð asó-litarefni) sem notuð eru í matvæli en rannsóknir hafa sýnt samhengi á milli neyslu efnanna og ofvirkni, einbeitingarskorts og annarra hegðunarvandamála hjá börnum. Einnig er þekkt að efnin geta valdið ofnæmiseinkennum.

Samtökin sendu nýlega bréf til Samtaka iðnaðarins og hvöttu innlenda framleiðendur til að skipta efnunum út fyrir önnur öruggari líkt og margir framleiðendur í Evrópu hafa þegar gert.

Samkvæmt nýjum reglum Evrópusambandsins verður framleiðendum innan tíðar skylt að merkja matvæli sem innihalda litarefnin E102, E104, E110, E122, E124 og E129 með varúðarmerkingunni; Getur haft óæskileg áhrif á hegðun og einbeitingu barna. Það er vissulega skref í rétta átt en Neytendasamtökin telja þó að vörur sem seldar eru með slíkri viðvörun eigi einfaldlega ekki erindi á markað.

Neytendasamtökin hvetja því innlenda framleiðendur til að skipta litarefnunum út hið fyrsta. Minnt er á að efnin voru bönnuð á Íslandi til ársins 1997 þannig að framleiðendur ættu að hafa reynslu af því að nota önnur og öruggari litarefni.

Sjá bréf Neytendasamtakanna til Samtaka iðnaðarins bréf
Sjá meira um litarefnin frétt

Senda grein

Óheimilt er að vitna í heimasíðu NS án þess að geta heimilda

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is