19. apríl 2010
Breiðbandið verður lagt niður. Hvað get ég gert?
Um þessar mundir er Síminn að breyta Breiðbandi Símans í Ljósnet og áætlað er að framkvæmdin taki 2-3 ár. Með þessari breytingu verður ekki hægt að senda út hliðrænar sjónvarpsrásir. Um það bil 40.000 heimili nota Breiðband Símans og einhver af þeim heimilum nota það til móttöku á hliðrænni útsendingu á RÚV. En RÚV og Omega eru einu hliðrænu rásirnar á breiðbandinu. Aðrar hliðrænar rásir eru háðar því að myndlyklar séu uppsettir hjá viðskiptavinum.
Síminn mun senda bréf til allra heimila u.þ.b. 4 vikum áður en umtenging fer fram og í kjölfar þess munu þjónustufulltrúar Símans hringja á öll heimili og kynna betur þá möguleika sem koma í staðinn.
Breyting úr breiðbandi í ljósnet verður kostnaðarsöm fyrir fólk og getur hlaupið á tugum þúsunda króna hjá mörgum heimilum, eftir því hvort er um að ræða fjölbýli eða einbýli og hvort þurfi að tengja og leggja nýja kapla innanhúss. Með nýrri ADSL lausn verður að aftengja svokallaðar ISDN heimilissímstöðvar. Þá er hægt að fá sér örbylgjuloftnet (Digital Ísland) en það er ódýrara en að leggja nýja kapla.
Ekkert í lögum bannar Símanum að taka breiðbandið af markaði, og verða þeir sem nota breiðbandið því miður að bera óþægindi og kostnað sem af því hlýst.