Kvörtunarþjónusta
Ef þú þarft aðstoð vegna kaupa á vöru eða þjónustu getur þú snúið þér til kvörtunarþjónustu NS.
Úrskurðarnefndir
Á vegum NS og margra samstarfsaðila þeirra eru úrskurðarnefndir um ágreiningsmál milli kaupenda og seljenda á ýmsum sviðum:
Erlent samstarf
NS eru fulltrúar neytenda í viðskiptum við erlend neytendasamtök og taka þátt í Norrænu samstarfi neytenda (NKU), Evrópusamtökum neytenda (BEUC), Alþjóðasamtökum neytenda (CI) og Alþjóðlegu rannsóknarráði neytenda (ICRT).
Verð- og gæðakannanir
Neytendasamtökin gera verðkannanir - ein eða í samvinnu við aðra. Neytendablaðið birtir markaðs- og gæðakannanir og einnig eru ítarlegri kannanir birta á vef NS fyrir félagsmenn Neytendasamtakanna.
Upplýsingaþjónusta NS hefur þessar upplýsingar á reiðum höndum. Hægt er að fá útskriftir af niðurstöðum verðkannanna.
Bækur, blöð og upplýsingar á vefnum.
- NS gefa út Neytendablaðið (prentað og á vef NS) og ýmis leiðbeiningarit fyrir neytendur.
- NS selja félagsmönnum erlendar bækur á hagstæðu verði.
- Á bókasafni NS á skrifstofunni í Reykjavík er að finna bækur og tímarit frá fjölmörgum erlendum samtökum og stofnunum neytenda, meðal annars með gæðakönnunum.
- Félagsmenn geta fengið heimilisbókhald í rafrænu formi á vef NS.
- Handbók Neytenda er aðgengileg fyrir alla á vef NS.
- Lagasafn neytenda er aðgengilegt fyrirr alla á vef NS.
- Skýrslur og rannsóknir um tryggingar og fjármál er aðgengileg á fjármálavef NS.
- Matvælavefurinn er tengla- og upplýsingasafn um matvæli, aðgengilegt fyrir alla á vef NS.
- Á vefnum er samantekt tengla og námsefnis í neytendafræðslu
- Mjög ítarlegt tenglasafn um allt er viðkemur málefnum neytenda er að finna á vef NS.
Lögfræðilegar upplýsingar
Upplýsingaþjónusta NS veitir lögfræðilegar upplýsingar um neytendamál almennt og líka einstaklingsbundið.
Annað:
- NS skipa fulltrúa í fjölmargar nefndir þar sem fjallað er um málefni neytenda til að sjónarmiða þeirra sé gætt.
- NS gefa umsagnir um lagafrumvörp og reglur sem varða neytendur.
- NS halda námskeið og fyrirlestra um margvísleg neytendamál.
- Neytendasamtökin senda reglulega erindi og kærur til viðkomandi eftirlitsstofnanna eða fyrirtækja og fylgja þeim eftir.
Hvernig gerist ég félagsmaður ? > Aðildarform
Hvað kostar þjónustan? > Verðskrá