Forsíða Hafa samband Aðild að NS
miðvikudagur | 8. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir

  

           Velkomin til Evrópsku neytendaaðstoðarinnar

       

Hjá okkur getur þú fengið upplýsingar um rétt þinn sem neytandi í löndum Evrópu. 
Við getum líka aðstoðað þig sértu beittur órétti af hálfu seljanda í öðru Evrópulandi. 
Evrópska neytendaaðstoðin er hluti af þjónustuneti sem kallast European Consumer Centre Net. 

Opnunartími
Skrifstofan er opin frá 9:00 – 15:00 alla virka daga. Einnig er hægt að hringja í síma 545 1200
frá 10:00 – 12:00 og 12:30 – 15:00 alla virka daga  eða senda tölvupóst á ena @ena.is.

MÁLAFLOKKAR

                             

NÝTT Á VEFNUM:

01. júlí 2010

Reglur um skilarétt, inneignarnótur og gjafabréf

Hér að neðan má finna þær reglur sem gilda á Íslandi um skilarétt vöru.   Mjög mismunandi er hvaða reglur gilda í Evrópu en hægt er að fá upplýsingar um það með því að hafa samband við Evrópsku neytendaaðstoðina.  Það er sameiginlegt með öllum löndunum á ESS-svæðinu að hægt er að hætta við kaup á vöru sem keypt er í gegnum netið innan sjö virkra daga frá afhendingu vörunnar.  
 
Á Íslandi eru til verklagsreglur um skilarétt, inneignarnótur og gjafabréf. Þessar reglur eru leiðbeinandi og er verslunum því ekki skylt að fara eftir þeim. Verslanir geta sett sér sínar eigin reglur um skilarétt og samkvæmt lögum er verslunum ekki skylt að taka tilbaka ógallaðar vörur, þ.e. nema þær séu keyptar í húsgöngu- eða fjarsölu, t.a.m. á netinu. Hér má nálgast verklagsreglurnar, og hér má sjá greinargerð nefndar viðskiptaráðuneytisins um skilarétt. Hér má sjá hvaða verslanir fylgja verklagsreglunum.

Meginatriði verklagsreglnanna eru:
· Neytandi á að minnsta kosti 14 daga skilarétt. 
· Vörur sem merktar eru með gjafamerki gera kassakvittun óþarfa við skil.  
· Inneignarnótur skulu miðast við upprunalegt verð vöru.  
· Gjafabréf og inneignarnótur gilda í allt að 4 ár frá útgáfudegi.  
· Skilaréttur tekur ekki til útsöluvöru nema um annað hafi verið samið.

Skil vöru á útsölu

Ef vara er keypt skömmu áður en útsalan hefst eða innan við 14 daga fyrir upphaf útsölunnar á að miða við verð vörunnar á útsölunni en ekki upphaflegt verð nema seljandi samþykki. Það getur reynt á þetta varðandi jólagjafir ef gjöfin er keypt skömmu fyrir jól og útsalan hefst strax eftir jólin. Þá er rétt að hafa í huga að kaupandinn á rétt á inneignarnótu sem miðar við upprunalegt verð vörunnar. Í sumum tilvikum getur verið heppilegra að þiggja inneignarnótuna og koma aftur í verslunina þegar útsölunni er lokið. Inneignarnótu sem gefin er út innan 14 daga fyrir útsölu eða meðan útsala stendur yfir er ekki heimilt að nota á útsölu nema með samþykki seljanda. 
Gjafabréf eiga að gilda á útsölu rétt eins og um peninga væri að ræða.

Gjafamerki á gjafir

Við ráðleggjum fólki að biðja um sérstakt gjafamerki en þegar vöru með gjafamerki er skilað þarf ekki að leggja fram kassakvittun eða aðra sönnun fyrir því hvar og hvenær varan var keypt.
Rétt er að benda á að sumar verslanir taka þóknun fyrir að skipta vörum sem eru keyptar annars staðar. Verslunum er þetta heimilt en við bendum fólki á að spyrja afgreiðslufólk hvort hægt verði að skipta vörunni og biðja um gjafamerki þannig að viðtakandi gjafarinnar viti hvert hann á að snúa sér vilji hann skipta.

Gildistími á inneignarnótum og gjafabréfum

Samkvæmt reglunum er gildistími á gjafabréfum 4 ár sem er hefðbundinn fyrningarfrestur. Það sama gildir um inneignarnótur þó með þeim fyrirvara að seljandi getur takmarkað gildistíma inneignarnóta niður í eitt ár ef það er tekið fram á nótunni sjálfri. Þar sem verklagsreglurnar eru ekki bindandi geta seljendur sem ekki fylgja þeim ákveðið sjálfir gildistíma á gjafabréf eða inneignarnótur og algengur gildistími er eitt ár. Við ráðleggjum fólki að kaupa ekki gjafabréf með mjög stuttan gildistíma, en dæmi eru um að gjafabréf  hafi 3 mánaða gildistíma. Tvö ár ættu að vera lágmark. Þá beinum við einnig þeim tilmælum til neytenda að nota gjafabréf og inneignarnótur fyrr en síðar því verði seljandi gjaldþrota er hætt við að peningarnir tapist.

Skilaréttur þegar vara er keypt á netinu

Rétt er að geta þess að þegar vara er keypt á netinu eða þegar seljandi gengur í hús og selur vöru getur kaupandinn hætt við kaupin í 14 daga frá afhendingu vörunnar. Þessi réttur er lögbundinn og seljendur verða því að virða hann. Sums staðar í Evrópu er þessi skilafrestur styttri eða allt niður í 7 daga.

Senda grein



Evrópska neytendaaðstoðin ECC

                 
Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns@ns.is   |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is