Úrskurðarnefndir miða að því að leysa úr ágreiningi án þess að fara þurfi með málið fyrir dómstóla. Nefndirnar leysa úr ágreiningi á ódýrari og fljótlegan hátt. Hér að neðan má finna lista annars vegar yfir þær nefndir sem eru starfræktar á Íslandi og hins vegar þær sem starfa í öðrum löndum Evrópsku neytendaaðstoðarinnar.
Úrskurðarnefndir á Íslandi
Á Íslandi er að finna nokkrar úrskurðar- og kærunefndir. Við getum veitt þér ráðleggingar þurfir þú að leggja mál fyrir slíka nefnd:
- Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
- Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum
- Úrskurðarnefnd í ferðamálum
- Úrskurðarnefnd Neytendasamtakanna og Tannlæknafélags Íslands
- Úrskurðarnefnd um þjónustu iðnaðarmanna
- Kvörtunarnefnd Neytendasamtakanna og félags efnalaugaeigenda
- Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa
Úrskurðarnefndir í öðrum löndum Evrópsku neytendaaðstoðarinnar - ECC
Gagnagrunnur ES