Leigjendaaðstoðin
Neytendasamtökin reka sérstaka leigjendaaðstoð fyrir leigjendur íbúðarhúsnæðis samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið.
Símatími er frá 12:30-14:00 á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum. Einnig er hægt að koma á skrifstofu Neytendasamtakanna eða erindi í tölvupósti.
Hjá leigjendaaðstoðinni er hægt að fá upplýsingar og ráðleggingar og milligöngu ef þörf krefur. Einnig eru leigjendur hvattir til að kynna sér þær upplýsingar sem aðgengilegar eru hér.
Ef leigusali og leigutaki ná svo ekki samkomulagi um ágreiningsefni sín er hægt að leita til kærunefndar húsamála, sjá nánari upplýsingar hér.
