Neytendaaðstoðin
Allir neytendur sem þurfa upplýsingar eða telja að á rétt sinn sé gengið geta fengið leiðbeiningar og aðstoð hjá Neytendasamtökunum.
Þjónustan er innifalin í árgjaldinu. Félagsmenn í Neytendasamtökunum geta því ávallt fengið leiðbeiningar og aðstoð á opnunartíma skrifstofu.
Í gildi er þjónustusamningur við innanríkisráðuneytið um leiðbeiningar- og kvörtunarþjónustu fyrir neytendur. Þeir sem ekki eru félagsmenn í Neytendasamtökunum geta því fengið leiðbeiningar á mánudögum og fimmtudögum fyrir hádegi í síma 545 1200 og sú þjónusta er ókeypis. Ef Neytendasamtökin þurfa að annast milligöngu í máli þarf að greiða grunngjald skv. verðskrá.
