Niðurstöður úr umræðuhópum á þingi Neytendasamtakanna 24-25. september 2010

Fyrir þing Neytendasamtakanna var lagt fram þingskjal með hugmyndum að umræðum um áherslur í neytendamálum. Málefnavinnan fór fram í fjórum málefnahópum, og þingfulltrúum gafst kostur á að taka þátt í umræðum hjá þremur af þeim. Málefnahóparnir unnu á hringborðum með hámark 10 þáttakendum fyrir utan borðstjóra og ritara. Auk þess að fjalla um þau áhersluatriði sem fráfarandi stjórn lagði fram gátu þingfulltrúar bætt við áhersluatriðum sem þeir töldu að Neytendasamtökin ættu að hafa afskipti af. Loks var í lok hverrar umræðu á borðum greidd atkvæði þannig að fram kom á hvaða áherslur fundarmenn lögðu mesta áherslu á í starfi samtakanna. Í þessu skjali er áhersluatriðum innan hvers málaflokks raðað miðað við það atkvæðamagn sem hvert mál fékk.

Með þessari aðferð kom fram skoðun fundarmanna á hvaða mál þeir leggðu mesta áherslu á að Neytendasamtökin vinni að á þessu kjörtímabili. Því er þetta skjal mikilvægur leiðarvísir nýrrar stjórnar um áherslur í starfi hennar.


 

Sjá: Áherslur Neytendasamtakanna 2010-2012

felags