28. desember 2012

Heimilisreksturinn gerður upp


Heimilið þarf áramótauppgjör rétt eins og vel rekið fyrirtækið. Tekjur og gjöld eru mikilvægar upplýsingar fyrir reksturinn því þær segja manni hvað mikið er til ráðstöfunar og hvort bregðast þurfi við til að ná endum saman. Gott heimilisbókhald sýnir hvert peningarnir fara og hvort vænta megi afgangs. Stundum þarf að skera niður og þá er gott að sjá hvar er svigrúm til þess. Það er einnig mikilvægt að gera áætlun um fjárhaginn til að bera saman við rauntölur og skoða árangurinn. Þeir sem færa heimilisbókhald reglulega auka verðvitund og yfirsýn yfir eigin fjármál.

 

Það þarf ekki flókið tölvuforrit til að skrá fjármálin.  Einfalt excel skjal eða bara reikningshefti og vasatölva sleppur ágætlega, þá er hægt að sníða heimilisbókhaldið eftir umfangi hvers og eins. 

 

Félagsmenn í Neytendasamtökunum hafa aðgang að rafrænu heimilisbókhaldi á læstum síðum fyrir félagsmenn á ns.is. Þetta er einfalt bókhald í excel-skjali. Skjalið er vistað í tölvu notandans og inniheldur töflur fyrir hvern mánuð þar sem skrá skal allar tekjur og útgjöld eftir  flokkum. Auk þess er sér tafla þar sem hægt er að færa áætlun fyrir hvern mánuð og bera saman við rauntölur. Þá er  einnig sjálfvirk tafla sem birtir heildartölur fyrir árið.

 

Ég er félagsmaður: Læstar síður (Innskráning lykilorðs hægra megin ofarlega)

Ég vil gerast félagsmaður: Skráning


bokhaldshnappur


Deila
Prentvæn útgáfa

 felagsmadur1