10. janúar 2013

Langtímastæði við Leifsstöð


Neytendasamtökin fá af og til kvartanir vegna gjaldtöku á bílastæðum við Leifsstöð en mörgum þykir gjaldið hátt. Fyrirtækið sem rekur langtímastæðin heitir Icepark og fékk reksturinn árið 2009 eftir að hafa tekið þátt í útboði en áður hafði Securitas rekið langtímastæðin. Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hefur fjallað um bílastæðisgjöldin á heimasíðu sinni. Þar kemur m.a. fram að í apríl 2011 hafi gjaldskráin hækkað mjög mikið eða um 50%. FÍB gagnrýndi þessa hækkun og kallaði eftir skýringum frá fyrirtækinu en lítið var um svör. Samkvæmt heimildum Neytendasamtakanna skýrist hækkunin 2011 af því að gjöldin höfðu ekki hækkað frá árinu 2006. Það mun vera Leifsstöð sem stýrir gjaldskrárbreytingum og eftir því sem Neytendasamtökin komast næst er nýtt útboð ekki fyrirhugað og allt eins líklegt að flugstöðin taki sjálf yfir rekstur á langtímastæðunum.

 


Það er kannski nærtækt að spyrja hvort aðrir aðilar geti ekki opnað sambærilega þjónustu og farið í samkeppni en því er til að svara að Leifsstöð á lóðina og sér um skipulagið á henni en ekki ríki eða nærliggjandi sveitarfélög. En er þá engin samkeppni?

 

Þótt ekki sé annað fyrirtæki sem bjóði upp á langtímastæði við Leifsstöð eru sem betur fer aðrir möguleikar fyrir ferðalanga. Hægt er að taka rútuna eða leigubíl og þá má finna gistiheimili í Reykjanesbæ sem bjóðast  til þess að geyma bílinn auk ferða til og frá velli. Fólk af landsbyggðinni, sem þarf að kaupa gistingu fyrir flug, ætti tvímælalaust að skoða þennan möguleika.

 


Á heimasíðunni alltumflug.is má sjá verðkönnun á langtímastæðum sem nær til 68 flugvalla í Evrópu. Leifsstöð er í 53 sæti þannig að verðið er ekki mjög hátt ef miðað er við aðra flugvelli. Það er þó kannski ekki furða að Íslendingum blöskri verðið á Leifsstöð því bílastæðisgjöld á Íslandi eru, ólíkt flestri annarri vöru og þjónustu, frekar lág miðað við það sem almennt gerist í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Rétt er þó að hafa í huga að gengi krónunnar er mjög veikt um þessar mundir og hefði þessi könnun verið gerð fyrir hrun hefði Leifsstöð komið verr út.

 
flugvollur_kef
 



Deila
Prentvæn útgáfa

 felagsmadur1