24. janúar 2013

CE-merkið tryggir ekki gæði eða öryggi



Margir neytendur standa í þeirri trú að CE-merkingin, sem finna má á mörgum vörum, sé einhvers konar gæðastimpill. Svo er ekki. Þessi merking er í raun ekki annað en skilaboð framleiðenda til eftirlitsaðila um að varan uppfylli þær reglur og þá staðla sem um hana gilda.

 


Evrópusamtök neytenda (BEUC) og samstarfsvettvangur evrópskra neytendasamtaka um staðlastarf (ANEC) hafa opinberlega gagnrýnt herferð Evrópusambandsins sem snýr að leikfangaöryggi. Í herferðinni er mikið lagt upp úr því að CE-merkið sé trygging neytenda fyrir því að leikfang sé öruggt. Samtökin benda hins vegar á að þar sem ekkert óháð eftirlit fari fram á vörum sem bera CE-merkið sé ekki um neina slíka tryggingu að ræða. Máli sínu til stuðnings benda BEUC og ANEC á að á þessu ári hafi þegar borist 250 tilkynningar um hættuleg leikföng í gegnum RAPEX tilkynningarkerfið. Nær öll þessi leikföng bera CE-merkið.

 


Samtökin segjast fagna því að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggi í herferð sem miðar að því að upplýsa framleiðendur og seljendur um skyldur þeirra við framleiðslu og sölu á vörum. Það sé hins vegar ekki rétt að beina þessari herferð til neytenda sem fyrir vikið líti á CE-merkinguna sem gæðastimpil. Evrópusamtökin hafa reyndar lagt til að CE-merkingin komi einungis fram í þeim skjölum og vottorðum sem fara á milli framleiðenda og seljenda en sé ekki sýnileg neytendum. 



Hvað er RAPEX?
RAPEX er evrópskt tilkynningarkerfi sem gerir opinberum eftirlitsstofnunum í Evrópulöndum kleift að miðla á sem skemmstum tíma upplýsingum um aðgerðir varðandi markaðssetningu á neytendavörum (öðrum en matvælum, lækningavörum og lyfjum) sem geta verið hættulegar fyrir líf, heilsu og öryggi neytenda. 


 

bangsice

 CE –merking ein og sér er ekki trygging fyrir því að vara sé örugg.



Deila
Prentvæn útgáfa

 felagsmadur1