Áhyggjur af þungmálmum í matvælum
Hátt magn arsens hefur fundist í matvælum sem eru unnin úr hrísgrjónum en einnig í ávaxtasöfum eins og epladjús og vínberjadjús. Neytendablaðið fjallaði nýlega um rannsókn sem systursamtök Neytendasamtakanna í Bandaríkjunum, Consumer Reports, hafa gert. Þar sem arsen finnst oft í náttúrunni er aldrei hægt að koma alveg í veg fyrir að það berist í fólk. Arsen mælist t.d. víða í grunnvatni og berst þannig út í drykkjarvatn og ýmsa ræktun á kornvörum og ávöxtum. Auk þess berast þungmálmar eins og arsen í matvæli í framleiðsluferlinu með ýmsum leiðum. Arsen er skaðlegt og því er mikilvægt að framleiðendur leiti leiða til að minnka magn þess í mat. Sjá: Arsen í matvælum (PDF)
Það er meiri hætta fyrir börn en fullorðna að neyta arsenríkra matvæla og því hafa stjórnvöld margar ríkja gefið út leiðbeiningar fyrir foreldra ungra barna. Sem dæmi má nefna að ráðleggingar í Danmörku og Svíþjóð ganga út á að ung börn neyti ekki hrísgrjónadrykkja.

Neytendasamtökin leituðu til Matvælastofnunar (MAST)vegna vinnslu greinarinnar í síðasta Neytendablaði og í ljós kom að engin rannsókn er til um arsen í matvælum hér á landi og viðmiðunarmörk um arsen í matvælum hafa ekki verið sett. Neytendasamtökin spurðu einnig um leiðbeiningar til foreldra en þær var hvorki að finna hjá Lýðsheilsustofnun né MAST. Því fagna Neytendasamtökin nýrri frétt frá MAST en þar kemur meðal annars fram að skoða þurfi hvort ráðleggingar sem beint er til foreldra í öðrum löndum eigi ekki heima hér. Sjá frétt: Mast.is
hrísgrjónaplanta
