01. febrúar 2013
Ársskýrsla Leigjendaaðstoðarinnar 2012
Ársskýrsla Leigjendaaðstoðarinnar 2012 er komin út. Sjá skýrslu (PDF).
Á árinu bárust alls 1.431 erindi, og vörðuðu flest þeirra álitaefni sem snúa að ástandi og viðhaldi leigueignar og uppsögn leigusamnings. Auk þess að svara erindum leigjenda heldur Leigjendaaðstoðin t.a.m. úti heimasíðunni leigjendur.is. Í skýrslunni má sjá nánari tölfræðilega útlistun þeirra erinda sem bárust á árinu auk upplýsinga um önnur verkefni sem Leigjendaaðstoðin sinnir. Þá er í skýrslunni að finna nokkur dæmi um algengar spurningar frá leigjendum. Neytendasamtökin hafa séð um rekstur Leigjendaaðstoðarinnar samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið frá vori 2011.

