25. febrúar 2013

Ársskýrslan 2012-konur duglegri að hafa samband


Út er komin ársskýrsla Leiðbeininga- og kvörtunarþjónustu Neytendasamtakanna  fyrir árið 2012.
Sjá skýrslu:  L&K 2012 (PDF)

 

Á árinu bárust Neytendasamtökunum 6.867 erindi. Flest erindin bárust símleiðis en einnig bárust 1.100 erindi í tölvupósti auk þess sem 300 manns heimsóttu skrifstofu samtakanna. Athygli vekur að umtalsvert fleiri konur en karlar höfðu samband við samtökin á árinu. Flest voru erindin vegna húsaleigu, en nánari umfjöllun um þann málaflokk er að finna í sérstakri ársskýrslu Leigjendaaðstoðarinnar . Þar næst komu erindi vegna bifreiða, kaupa á tölvum og farsímum, fatnaðar og þjónustu fjármálafyrirtækja. Þá annaðist kvörtunarþjónustan milligöngu í 194 kvörtunarmálum á árinu, flest þeirra komu í gegnum Evrópsku neytendaaðstoðina (sjá sérstaka ársskýrslu  ECC á Íslandi) eða vörðuðu húsaleigu, en þar á eftir komu mál vegna raftækja, fjarskiptafyrirtækja og iðnaðarmanna.

 

Í skýrslunni er að finna nánari tölfræðiupplýsingar auk dæma um kvörtunarmál. Þar er einnig að finna upplýsingar um kæru- og úrskurðarnefndir sem Neytendasamtökin eiga aðild að en mikið annríki hefur verið undanfarin ár hjá sumum nefndanna.

 

farsimi2

 


Deila
Prentvæn útgáfa

 felagsmadur1