Eftirlit með framleiðslu og sölu á matvælum er hjá fleiri en einum aðila. Það fer eftir eðli kvörtunarinnar og jafnvel hvar varan er keypt.

 

Íslandi er skipt í 10 heilbrigðiseftirlitssvæði og er hvert þeirra sjálfstætt stjórnvald. Heilbrigðisfulltrúar hafa umsjón með starfsleyfisgerð og eftirliti með efnavörum, hollustuháttum, matvælum, umhverfisgæðum og mengandi starfsemi innan hvers heilbrigðiseftirlitssvæðis. 

 

Matvælastofnun er opinber eftirlitstofnun sem hefur eftirlit með gæða-, hollustu- og umhverfisvernd að því er varðar helstu aðföng til landbúnaðar og því óbeint eftirlit með gæðum og hollustu matvæla úr íslenskum landbúnaði. Einnig hefur stofnunin yfirumsjón með heilbrigði sláturdýra, heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum og framleiðslu mjólkur.


Kvartað vegna matvæla: