NEYTENDAFRÆÐSLA
Neytendasamtökin halda námskeið um réttindi neytenda og heimilisbókhaldið. Námskeiðið verður haldið mánudaginn 7. maí kl.17:00-20:00 á skrifstofu samtakanna að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja öðlast góða yfirsýn yfir fjármálin og auka neytendavitund sína.
Í fyrri hluta námskeiðisins verður farið yfir almennan neytendarétt. Leitast verður við að svara algengum spurningum neytenda: Get ég alltaf skilað aftur vöru hvort sem hún er heil eða gölluð? Er betra að kaupa gjafakort eða gefa bara pening? Hvaða verð gildir þegar það er ósamræmi í verðmerkingum? Hver eru verkefni Neytendasamtakanna?
Seinni hluti námskeiðsins fjallar um fjármál heimilanna, sparnaðarráð og heimilisbókhald. Stuðst verður við rafrænt heimilisbókhald Neytendasamtakanna.
Námskeiðið er ókeypis og opið fyrir alla. Skráning fer fram í síma 5451200 á opnunartíma skrifstofu eða í netfangi ns@ns.is

