RÉTTINDI
 

Gölluð vara

Þegar vara er gölluð samkvæmt skilningi laga á neytandi rétt á úrbótum. Seljandi hefur rétt á að gera við gallann en fær þó ekki meira en tvær tilraunir.

Gjafabréf

Algengt er að seljendur tilgreini gildistíma á gjafabréfi, oft er miðað við 1 ár og jafnvel styttri. Neytendasamtökin telja eðlilegt að gildistími á gjafabréfi sé 4 ár en það er almennur fyrningarfrestur

Skilaréttur

Það er ekkert talað um skilarétt í lögum og strangt til tekið þurfa verslanir ekki að taka aftur við vörum nema þær séu gallaðar.

Verslað á netinu

Það færist í vöxt að fólk versli á netinu enda getur það verið bæði hagkvæmt og þægilegt. Ýmislegt ber þó að hafa í huga.

Alþjóðadagur neytendaréttar

Alþjóðadagur neytendaréttar er haldinn árlega þann 15. mars. Þar er meðal annars minnst sögulegrar yfirlýsingar fyrrum forseta Bandaríkjanna, John F. Kennedy frá 15. mars 1962 um grundvallarréttindi neytenda.

 


 

 

 felagsmadur1


  leidarkerfitn