UMHVERFI OG SIÐRÆN NEYSLA
 

Skaðleg efni í vörum

Nú á dögum kemst mannkynið í snertingu við fleiri gerðir efna og efnasambanda en nokkru sinni fyrr. Varasöm efni er að finna í fatnaði, byggingum, snyrtivörum, farartækjum, lyktareyðum, dýnum, húsgögnum og rafmagnstækjum.

Bisphenol-A

Bisphenol-A eða BPA hefur verið notað í vatnsflöskur pela og sem plastefni sem húðar innri hliðar niðursuðudósa. Efnið er nú víða bannað í pelum, m.a. hér á landi.

Erfðabreytt framleiðsla

Tækni sú sem notuð er til að erfðabreyta lífverum með flutningi á genum úr einni lífveru yfir í aðra er nefnd erfðatækni.  Með erfðatækni er unnt að búa til lífverur sem aldrei gætu orðið til í náttúrunni.

Siðræn neysla

Í kjölfar hnattvæðingarinnar hefur umræða um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og siðræna neyslu aukist. Mörg fyrirtæki sjá sér í hag í því að flytja framleiðsluna til fátækra landa þar sem launakostnaður er lágur og eftirlit hins opinbera gjarnan lítið.

Þekkir þú merkin?

Fjölmargar vottanir má sjá á ýmsum vörum en þær tryggja að vörurnar uppfylla ákveðin skilyrði.  Dæmi um slíkar vottanir eru umhverfis-merki, sanngjörn viðskipti  og lífræn vottun.

Matvælasóun

Stór hluti þeirra matvæla sem er ræktaður í heiminum endar með einum eða öðrum hætti sem sorp. Þessi sóun á sér stað á öllum stigum framleiðslunnar, ekki síst hjá neytendum.

 

 

 

 

felags