Þing 2012 - auglýsingar og þingskjöl

 

Þing 2012

Þing Neytendasamtakanna verður haldið laugardaginn 29. september nk. og hefst það kl. 10:00 og áætlað er að það standi til kl. 17:00.

Ath. ný staðsetning: Þingið verður haldið í Lionssalnum Lundur, Auðbrekku 25-27, Kópavogi.

 

Hér verður þingið haldið:

lundur

 

Samkvæmt lögum Neytendasamtakanna eiga allir skuldlausir félagsmenn rétt til þátttöku tilkynni þeir þátttöku sína í síðasta lagi viku fyrir þing. Á þinginu er kosin ný stjórn og ákveðnar eru áherslur í neytendamálum og starfsemi Neytendasamtakanna fyrir næstu tvö ár.

 

Stjórn Neytendasamtakanna hvetur félagsmenn til að hafa áhrif á starfsemi samtakanna og taka þátt í þinginu. Áhugasamir eru beðnir um tilkynna um þátttöku sína í síma 545 1200 og 462 4118 eða með tölvupósti á netfangið ns@ns.is. Fram þarf að koma fullt nafn, kennitala, heimilisfang og netfang.

 

Þeir sem ekki eru nú þegar félagsmenn en hafa áhuga á að sitja þingið geta það ef þeir ganga í Neytendasamtökin og greiða árgjald.


 


Deila
Prentvæn útgáfa

felagsmadur1