20. Opinber þjónusta
Þegar talað er um hið opinbera er átt við bæði ríkið og sveitarfélögin. Þú átt rétt á ákveðinni þjónustu frá þessum aðilum, sem dæmi má nefna leit ef þú týnist, sorphirða, heilsugæsla, lágmarksskólaganga o.s.frv. o.s.frv.
En það er margvísleg opinber þjónusta rekin, þar sem að hið opinbera kemur fram í hlutverki seljanda en þú í hlutverki kaupanda eða neytanda. Mörg þessara þjónustufyrirtækja hins opinbera má einkavæða og hafa verið einkavædd í sumum löndum nú þegar. Hér er átt við þjónustu eins og t.d. hitaveitur, vatnsveitur, rafmagnsveitur, barnaheimili.
Í fæstum tilvikum er til sérstakur samningur neytandans og hins opinbera þjónustuaðila. Réttarstaða aðila kann því að vera óljós á stundum, t.d. hafa rafmagns- og hitaveitur viljað takmarka ábyrgð sína á tjónum, sem verða vegna þess, að rafmagn fer af eða heitt vatn er ekki nægjanlegt.
Þetta er óásættanlegt fyrir neytendur og í mörgum tilvikum yrðu ábyrgðarleysisákvæði opinberra aðila metin sem ólögmætir samningsskilmálar og þeim yrði vikið til hliðar af þeim sökum. En það breytir ekki þeirri staðreynd, að það skortir á, að þessi þjónustufyrirtæki gangi frá samningum við viðskiptavini sína svo sem krefjast verður af þeim. Nauðsynlegt er fyrir þessi þjónustufyrirtæki, að ganga frá samningum við viðskiptavini sína hið fyrsta í samráði við Neytendasamtökin.
Neytandinn á rétt á að þjónusta sem opinberir aðilar veita sé viðunandi. Í því sambandi er enginn munur á því hvort neytandinn kaupir vöruna eða þjónustuna af einkaaðila eða opinberum aðila. Það skiptir heldur ekki máli hvort að neytandinn greiðir ákveðin gjöld við viðtöku opinberu þjónustunnar eða kostnaður við þjónustuna er greiddur af almennum útgjöldum ríkisins eða sveitarfélagsins. Neytandinn á hvort heldur er rétt á góðri gallalausri þjónustu.
Sé galli á þeim hlutum sem að opinberir aðilar eiga að veita þá koma til skoðunar sömu úrræði fyrir neytanda og lýst er hér annars staðar um kaup neytanda á gölluðum hlut eða kaflan þar sem fjallað er um gallaða eða ófullnægjandi þjónustu.
www.island.is er leiðarvísir að opinberri þjónustu og liður í að auðvelda almenningi aðgang að henni.