Samtök iðnaðarins
Borgatúni 35
105 Reykjavík
Reykjavík 28. júlí 2008
Neytendasamtökin beina þeim tilmælum til Samtaka iðnaðarins að þau kynni aðildarfyrirtækjum í matvælaiðnaði eftirfarandi:
Rannsóknir hafa bent til að neysla nokkurra algengra litarefna, E110, E104, E122, E129, E102 og E124, sem notuð eru í matvæli geti haft óæskileg áhrif á heilsu barna. Niðurstöður nýrrar og viðamikillar breskrar rannsóknar (Southampton rannsóknin) sem birtar voru í læknaritinu Lancet í september sl. sýndu samhengi á milli neyslu efnanna og ofvirkni, einbeitingarskorts og annarra hegðunarvandamála hjá börnum. Einnig er þekkt að efnin geta valdið ofnæmiseinkennum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem rannsóknir leiða slíkt í ljós en efnin hafa lengi verið umdeild.
Í kjölfarið á niðurstöðum rannsóknarinnar varð mikil umræða í Evrópu um skaðsemi efnanna og margir framleiðendur í Danmörku og í Bretlandi hafa skipt efnunum út fyrir önnur öruggari.
Stutt er síðan Evrópuþingið samþykkti lög sem munu skylda framleiðendur til að merkja sérstaklega vörur sem innihalda litarefnin sex með varúðarmerkingu. Þetta er skref í rétta átt en neytendasamtök hafa þó krafist þess að efnin verði einfaldlega bönnuð. Þyki ástæða til að vara sérstaklega við neyslu matvæla er varla ásættanlegt að hafa slíka vöru til sölu.
Neytendasamtökin hafa fjallað um málið í Neytendablaðinu og á heimasíðu samtakanna. Að öðru leyti hefur umfjöllun um litarefnin verið furðu lítil. Efnin eru notuð í íslenskri framleiðslu (t.d. sælgæti og frostpinnum). Hugsanlega hafa fréttir af skaðsemi efnanna farið fram hjá íslenskum framleiðendum. Neytendasamtökin vilja því vekja athygli framleiðenda á þessu mikilvæga máli og hvetja þá til að skipta efnunum út hið fyrsta.
Rétt er að benda á þá staðreynd að efnin voru bönnuð á Íslandi til ársins 1997, en þá þurfti að samræma íslenska löggjöf við Evrópulög í samræmi við EES- samninginn. Íslenskur matvælaiðnaður hefur því reynslu af því að nota önnur og öruggari litarefni.
Virðingarfyllst
F.h. Neytendasamtakanna
_________________________________
Jóhannes Gunnarsson formaður
Afrit sent: Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra