08. janúar 2010
Í tilefni þess að nú nýlega hóf ákveðið bílaumboð að auglýsa nýja bíla með „fimm ára ábyrgð“ telja Neytendasamtökin rétt að benda á eftirfarandi.
Staða neytenda samkvæmt lögum
Í neytendakaupalögum (þ.e. þegar neytandi kaupir vöru af fyrirtæki) er að finna svokallaða fimm ára reglu sem gerir það að verkum að kvörtunarfrestur er fimm ár vegna galla í hlutum sem ætlaður er verulega lengri endingartími en gildir um söluhluti almennt. Þetta hefur í för með sér að þegar um er að ræða stærri og endingarbetri hluti hefur neytandi fimm ár til að tilkynna seljanda um galla. Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa hefur komist að þeirri niðurstöðu að bifreiðar falli þarna undir. Neytandinn þarf þó, séu meira en sex mánuðir liðnir frá því hann fékk bílinn, að sýna fram á að um galla sé að ræða. Auðvitað getur svo þurft að endurnýja ýmislegt í bílum á þessu fimm ára tímabili, eins og t.d. perur og þurrkublöð, án þess að slíkt teljist galli.
Er „fimm ára ábyrgð“ þá í lögum?
Ekki er heimilt að gefa út ábyrgðaryfirlýsingu nema verið sé að bjóða meira en neytandi á rétt á samkvæmt lögum. Neytandi getur kvartað yfir galla á bifreið í fimm ár frá því hann veitir henni viðtöku, að því gefnu að hann tilkynni um gallann innan hæfilegs tíma og að um galla, en ekki t.a.m. eðlilegt slit, sé að ræða. Ekki er því heimilt að auglýsa ábyrgð á bifreiðum nema í ábyrgðinni felist raunverulega eitthvað meira en neytandinn á lagalegan rétt á. Ef í raun er bara verið að tala um fimm ára kvörtunarfrest vegna galla ætti ekki auglýsa hann sem „ábyrgð“. Kvörtunarfrestur er einfaldlega fimm ár óháð yfirlýsingum seljanda og verksmiðjuábyrgð, en ekki má semja um að neytandi eigi minni rétt en ráða má af lögunum.
Eru þjónustuskoðanir hjá umboði skylda?
Nei, neytendum ber ekki skylda til að fara með bifreið í reglulegar þjónustuskoðanir hjá bílaumboði. Eigandi bifreiðar þarf vissulega að sinna viðhaldi bifreiðar, fara með hana í smurningu og þess háttar, enda eykur vanræksla líkurnar á alvarlegum bilunum. Sinni neytandi viðhaldi og eftirliti ekki sem skyldi getur það líka veikt réttarstöðu hans ef upp kemur galli. Hins vegar á neytandi samkvæmt lögum rétt á að fá úrbætur vegna galla sem upp kemur og ekki er heimilt að skilyrða þann rétt með því að skylda fólk til að mæta með bifreiðar í þjónustuskoðanir á ákveðna staði. Kjósi neytendur að láta önnur verkstæði en umboðsverkstæði sinna reglubundnu viðhaldi er ekkert í lögum sem kemur í veg fyrir það.
Nánari umfjöllun um þennan fimm ára kvörtunarfrest og bílaviðskipti er að finna hér, hér, og hér en einnig var fjallað stuttlega um þjónustuskoðanir á nýjum bílum í 3. tbl. Neytendablaðsins 2009.