Nýtt samkomulag um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga
     
    • Aðilar eru sammála um gildi þeirrar stefnu að draga úr vægi ábyrgða einstaklinga og að lánveitingar verði miðaðar við greiðslugetu greiðanda og eigin tryggingar hans.
    • Samkomulagið tekur til allra skuldaábyrgða.
    • Fjármálafyrirtæki ber að meta greiðslugetu greiðanda, nema ábyrgðarmaður óski sérstaklega eftir því með skriflegum hætti að svo verði ekki gert.  Greiðslumat gert að meginreglu.
    • Við greiðslumat skal tekið tillit til neyslu og annarra fastra útgjalda áður en ráðstöfunarfé til greiðslu skuldbindinga er reiknað út.
    • Fjármálafyrirtæki er þó alltaf skylt að greiðslumeta skuldara þegar ábyrgð ábyrgðarmanns á skuldum viðkomandi skuldara nemur meira en kr. 1.000.000.  Hjón og fólk í óvígðri sambúð geta fengið undanþágu.
    • Fjármálafyrirtækjum er skylt að gefa út upplýsingabæklinga og láta ábyrgðarmenn fá áður en þeir ganga í ábyrgð.
    • Ef ráðstafa á meira en helmingi láns til að greiða eldri skuldir þarf ábyrgðarmaður að staðfesta skriflega að honum sé kunnugt um þá ráðagerð.
    • Tryggja á að ábyrgðarmaður geti kynnt sér niðurstöður greiðslumats áður en hann gengst í ábyrgð.
    • Ef niðurstaða greiðslumats bendir til að greiðandi geti ekki efnt skuldbindingar sínar en ábyrgðarmaður óskar eftir að lán verði veitt engu að síður skal hann staðfesta það skriflega.
    • Stefnt skal að því að ábyrgðarmanni sé tilkynnt um vanskil innan 30 daga.
    • Fjármálafyrirtæki skal um hver áramót tilkynna ábyrgðarmanni skriflega hvaða kröfum hann er í ábyrgðum fyrir og hverjar eftirstöðvar þeirra eru og hvort um vanskil er að ræða.
    • Skuldaábyrgð til tryggingar yfirdráttarheimild skal miðast við tiltekna hámarksfjárhæð og ekki gilda lengur en í 4 ár frá útgáfudegi.
    • Ábyrgðarmanni er heimilt að segja upp ábyrgð sinni og skal það gert skriflega.
    • Skuldaábyrgð til tryggingar kreditkorti skal miðast við tiltekna hámarskfjárhæð og ekki gilda lengur en í 4 ár frá útgáfudegi.
    • Aldur ábyrgðarmanna skal að jafnaði ekki lægri en 20 ár.  Ath.  Ákvæði um hámarksaldur var tekið út vegna mótmæla félags eldri borgara við slíku ákvæði.
    • Óheimilt er að stofna til skuldaábyrgða og veðsetninga án þess að tilgreina fjárhæð skuldbindingarinnar eftir gildistöku samkomulagsins.
    • Fjármálafyrirtæki skulu beita sér fyrir endurnýjun eldri skuldaábyrgða og veðsetninga sem tilgreina ekki fjárhæð skuldbindingarinnar.