- Lög um verslunaratvinnu 1998 nr. 28 8. apríl
- Reglugerð um upplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki, nr. 44/2003
- Reglugerð um starfsábyrgðartryggingu bifreiðasala, nr. 46/2003
- Lög um bílaleigur 2000 nr. 64 20. maí
- Reglugerð um bílaleigur nr. 790/2006
- Lög um bifreiðagjald 1988 nr. 39 20. maí
- Reglugerð um bifreiðagjald nr. 359/1998
1. Almennt um bílaviðskipti.
Árlega skipta tugþúsundir bíla um eigendur á Íslandi. Vegna vanþekkingar á viðskiptareglum skapast oft vandamál sem ekki hefði komið til ef aðilar hefðu kynnt sér lög og reglugerðir varðandi slík viðskipti,- áður en kaupin áttu sér stað.
Þau lög og reglugerðir sem gilda um bílaviðskipti og helst þarf að kanna eru:
a. Lög um lausafjárkaup nr 39/1922 (Kaupalög) með síðari breytingum. (Ný lög um lausafjárkaup nr 50/2000 taka gildi 1. júní 2001).
b. Lög um verslunaratvinnu nr. 28/1998 (sbr. lög nr.69/1994, sbr, nr 20/1997).
c. Reglugerð nr. 654 frá 21.nóv. 1997 um upplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki.
2. Kaupalögin.
Í kaupalögunum er það einkum kaflinn "Um það er seldum hlut er áfátt" sem kanna þarf ef vandamál koma upp eftirá. Þar eru (47.gr.) ákvæði um skoðunarskyldu kaupandans áður en kaup gerast, um (52.gr.) tilkynningaskyldu kaupanda til seljanda er hann telur að söluhlut sé ábótavant, og (54.gr.) ábyrgðartíma frá afhendingardegi.
Þá eru ákvæði um riftun, skaðabótaskyldu og rétt seljanda o.m.fl. Sérstaklega ber að vekja athygli á skoðunarskyldu kaupanda og tilkynningaskyldu hans. (Breytingar vegna nýrra laga verða kynntar er lögin taka gildi 1. júní 2001).
3. Lög um bílasala.
Í lögum um verslunaratvinnu (bílasalakafla) (14.gr.) er lögð áhersla á skyldur bílasala að afla upplýsinga frá seljanda, staðreyna þær og staðfesta réttar upplýsinga um skráðan eiganda og veðbönd. Bifreiðasali skal varðveita öll gögn í eitt ár frá söludegi. Þá er (15.gr.) ákvæði um góðar viðskiptavenjur og jafnræði viðskiptavina og þá skyldu bifreiðasala að " áður en gengið er frá afsali notaðs ökutækis, greina kaupanda með sannanlegum hætti frá þeim rétti hans að láta óháðann aðila meta ástand ökutækis, svo sem faggilta skoðunarstofu eða faggilt skoðunarverkstæði".
Þá ber bifreiðasala að vekja athygli á gjaldskrá fyrir söluþóknun, "þar á meðal þegar um skipti á bifreiðum er um að ræða". Bifreiðasali skal (16.gr.) annast endanlegan frágang skjala vegna viðskiptanna og geta þess "svo að eigi verði um villst" hver hafi samið og gjört þau. "Bifreiðasali skal ábyrgjast að tilkynning um eigendaskipti sé send ökutækjaskrá án tafar."
Eftirlit (19.gr.) með starfsemi bifreiðasala er í höndum lögreglustjóra, en viðskiptaráðherra (25.gr.) fer með framkvæmd laganna.
4. Reglugerð um upplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki.
Í reglugerðinni (1.gr.) er tiltekið að hún taki til "lágmarksupplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki sem fara fram með milligöngu bifreiðasala" skv. lögum þar um. Fyrst og fremst er í reglugerðinni lögð áhersla á atriði sem koma fram í einstökum greinum laganna nema í IV. kafla sem ber fyrirsögnina "Gögn sem nota skal og fylgja skulu við sölu" þar eru sett fram atriði sem eru fyllri en fram kemur í lögunum:
6. gr. : Við kaup og sölu á notuðu ökutæki skal nota kaupsamnings- og afsalseyðublað sem er í samræmi við þær kröfum sem fram koma í viðauka II (meðfylgjandi reglugerðinni).
7. gr.: Við sölu skulu eftirfarandi gögn liggja fyrir:
a. Vottorð úr ökutækjaskrá sem sýnir ótvírætt að seljandi sé eigandi þess ökutækis sem selt eða hafi umboð til sölunnar.
b. Skrá yfir fyrri eigendur með sannanlegum hætti.
c. Upplýsingar um hugsanlegan tjónaferil ökutækisins með sannanlegum hætti. Þar á meðal ferilskrá um framkvæmd viðgerðar á ökutæki sem lent hefur í tjóni.
d. Hvort veðbönd hvíli á ökutækinu.
e. Skriflegar upplýsingar seljanda skv. 1.mgr. 4.gr. sem fylgja skulu afsali.
5. Í hnotskurn.
Kynnið ykkur þau gögn sem liggja eiga fyrir og fylgja skulu afsali. Að lokinni ástandsskoðun á bifreiðinni skal óska eftir að athugasemdir sem kaupandi/seljandi hefur fram að færa verði færðar inn á afsalsblaðið. Krefjast skal þess að þau gögn sem reglugerðin mælir um að leggja skuli fram séu öll til staðar og munnlegar skýringar verði skrásettar. Ef fram kemur athugasemd um smávægilega bilun, sem seljandi vill bæta með lagfæringu eða afslætti, er eindregið mælt með að láta seljanda sjá um lagfæringu fyrir afhendingu frekar en þiggja afslátt á verði eða síðari greiðslu á lagfæringu. Ef seljandi veit um galla eða bilun þá láti hann skrá það á afsal.
Kaupandi verður að hafa það í huga við kaup á notuðum bíl að eðlilegt slit er sú áhætta sem kaupandinn ber sjálfur og vernd kaupalaga nær ekki til eðlilegs viðhalds á bílnum. Ef grunur um galla kemur í ljós ber að tilkynna seljanda það og fá álit fagmanns á því "hvað er að og af hverju", því á kaupanda hvílir sú sönnunarbyrði að sýna framá að galli hafi verið til staðar við afhendingu bílsins.
Þegar bílar eru keyptir án afskipta bifreiðasala er rétt að hafa í huga þær skyldur sem á bifreiðasölum hvíla með upplýsingagjöf og krefja seljanda um sambærilegar upplýsingar og staðfestingar.
Lög þau sem vitnað er í má finna í lagasafni á vefsíðu Alþingis. Reglugerð um upplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki má finna á vefsíðu Viðskiptaráðuneytisins.
Sjá einnig heimasíðu Fíb um bílakaup: www.fib.is.