Lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga taka til samninga um sölu á vöru eða þjónustu sem gerðir eru við neytendur í fjarsölu eða húsgöngusölu. Með fjarsölu er átt við sölu á grundvelli sölukerfis sem seljandi hefur skipulagt þar sem notuð er fjarskiptaaðferð til að gera samning við neytanda en dæmi um fjarskiptaaðferð er póstlisti og tölvutæknin. Húsgöngusala er sölustarfsemi sem seljandi skipuleggur utan fastrar starfstöðvar sinnar með því að fara á heimili neytanda eða vinnustað. Lögin taka þó ekki til allra tegunda samninga en dæmi um samninga sem lögin taka ekki til eru samningar um smíði eða byggingu á fasteignum, samningar um kaup á verðbréfum, vátryggingum eða annarri samsvarandi fjármálaþjónustu og húsgöngusölusamningar sem eru að verðmæti kr. 4.000,- eða minna. Neytandi getur ekki afsalað sér þeim réttindum sem honum eru fengin skv. þessum lögum.
Seljanda ber að veita tilteknar upplýsingar á skýran og greinargóðan hátt áður en húsgöngu- eða fjarsölusamningur er gerður. Þetta á þó t.d. ekki við um samninga um sölu á daglegum neysluvörum og samninga um gisti-, flutninga- og tómstundaþjónustu. Upplýsingar þær sem seljanda ber að veita eru m.a. nafn og heimilisfang sitt, helstu eiginleikar vörunnar, t.d. innihaldslýsingar og viðvaranir um hættueiginleika, verð vöru eða þjónustu þ.m.t. afhendingarkostnaður, fyrirkomulag greiðslna og afhendingar og rétt til að falla frá samningi án kostnaðar.
Neytandi á rétt á að fá skriflega staðfestingu á framangreindum upplýsingum. Ennfremur skal seljandi í þessari staðfestingu upplýsa neytanda m.a. um það hvort hann eigi rétt til að falla frá samningi og nánari skilyrði varðandi þann rétt neytandans, heimilisfang þar sem tekið er við kvörtunum og ábyrgð og þjónustu sem seljandi veitir. Þessar skriflegu upplýsingar ber seljanda að afhenda neytanda innan hæfilegs frests áður en samningur er efndur og ekki síðar en við afhendingu vöru. Ef seljandi fullnægir ekki þessari upplýsingaskyldu sinni innan tilgreinds frests er samningurinn ekki bindandi fyrir neytandann.
Ef samningur er gerður í húsgöngu- eða fjarsölu getur neytandi fallið frá samningi í 14 daga frá afhendingu vöru eða gerð samningsins án þess að tilgreina nokkra ástæðu og án kostnaðar. Neytandi á þó ekki þennan rétt þegar t.d. um sérpantaða vöru er að ræða eða þegar neytandi hefur rofið innsigli á myndbandi eða hugbúnaði sem hann hefur keypt í húsgöngu- eða fjarsölu. Ef neytandi fellur frá samningi ber honum að skila seljanda þeirri vöru sem hann hefur móttekið og seljanda að endurgreiða honum andvirði hins selda eins fljótt og kostur er og eigi síðar en eftir 30 daga. Seljanda er einungis heimilt að krefja neytanda um greiðslur vegna beins kostnaðar við að skila vörunni. Ef neytandi nýtir sér þennan rétt skulu allir lánssamningar sem hann kann að hafa gert í tengslum við kaupin einnig falla úr gildi.
Seljanda ber að afgreiða pöntun neytanda innan 30 daga frá því að hún var gerð en ef varan er ófáanleg ber honum að tilkynna neytanda það þegar í stað og endurgreiða honum kaupverðið ef það hefur verið greitt.
Ágengar söluaðferðir eru bannaðar í lögunum en með því er átt við að óheimilt er að senda neytanda vöru eða þjónustu sem greiða á fyrir hafi hann ekki pantað vöruna eða þjónustuna. Ennfremur er þegjandi samþykki neytanda við slíkar söluaðferðir ávallt ógilt.
Bein markaðsókn til neytanda sem hefur skráð sig í skrá Hagstofunnar yfir þá aðila sem vilja ekki að nöfn þeirra séu notuð við markaðssetningu er óheimil. Ef neytandi er ekki í skrá Hagstofunnar né með sérmerkingu í símaskrá ber seljanda sem sendir honum tölvupóst í beinni markaðssókn að gefa honum kost á að veita samþykki sitt fyrir áframhaldandi sendingum. Ef neytandi gefur ekki samþykki sitt eru áframhaldandi sendingar með tölvupósti óheimilar.