Forsíða Hafa samband Aðild að NS
laugardagur | 4. febrúar
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

Verklagsreglur um skilarétt og skilaréttarmerki

Það er ekkert talað um skilarétt í lögum og strangt til tekið þurfa verslanir ekki að taka aftur við vörum nema þær séu gallaðar. Langflestar verslanir leyfa þó neytendum að skila eða skipta vörum svo framarlega sem þær eru ónotaðar. Oft er gerð krafa um að neytandinn sýni fram á kaupin svo sem með framvísun kassakvittunar. Það er því gott ráð að geyma kvittanir.

 

Oft er ákveðinn gildistími á inneignarnótum og telja Neytendasamtökin eðlilegt að hann sé aldrei minna en eitt ár. Ef ekkert er tekið fram á nótunni gildir almennur fyrningarfrestur sem er 4 ár.

 

Margar verslanir skilyrða inneignanótur þannig að ekki megi nota þær á útsölum. Við þessu er í raun ekkert að segja en seljendur ættu þó að upplýsa neytendur um slíka fyrirvara.

 

 Verklagsreglur um skilarétt

Á árinu 2000 gaf viðskiptaráðuneytið út verklagsreglur um skilarétt, gjafabréf og inneignarnótur. Reglurnar eru leiðbeinandi og þeir seljendur sem fylgja þeim og auka þannig þjónustu sína við neytendur gera það að eigin frumkvæði og án lagaboðs.



Meginatriði verklagsreglnanna eru:

réttur til að skila ógallaðri vöru sé a.m.k. 14 dagar frá afhendingu

vörur sem merktar eru með gjafamerki gera kassakvittun óþarfa við skil

inneignarnótur skulu miðast við upprunalegt verð vöru

gjafabréf og inneignarnótur gilda í allt að fjögur ár frá útgáfudegi

skilaréttur tekur ekki til útsöluvöru

 

Skilaréttarmerkið gefur til kynna að verslunin fari eftir verklagsreglum um skilarétt.

 

Sjá lista yfir verslanir sem fara eftir verklagsreglum um skilarétt.

 
 


 

 



Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is