Neytendasamtökin efna til samtals um neytendamál við neytendur og sveitarstjórnir vítt og breitt um landið. Samtökin kynna sér helstu mál sem brenna á fólki á landsbyggðinni og segja frá baráttumálum sínum og þann ávinning sem sterkur hagur neytenda færir fólki, fyrirtækjum og samfélaginu öllu.
Umræðuefnin eru fjölmörg: heildarstefnumótun í neytendamálum, samkeppnismál, flutningskostnaður, raforkuöryggi og -verð, dýrtíðin og svo mætti lengi telja. Auk opinna funda með neytendum verður fundað með á annan tug sveitarstjórna víðs vegar um landið.
Neytendur um land allt eru hvattir til að mæta og láta í sér heyra.
Tölum um neytendamál
2. maí kl. 20:00 Dokkan Ísafirði
6. maí kl. 12:00 Kaffi Krókur, Sauðárkrókur
6. maí kl. 17:00 Lyst -Lystigarðinum, Akureyri
7. maí kl. 11:30 Húsavík
7. maí kl. 17:00 Hótel Hérað, Egilsstaðir
8. maí kl. 17:00 Ráðhúsið, Höfn Hornafirði
Fleiri staðir gætu bæst við. Fylgist því með!